Grunnnámskeið fyrir alla sem langar til að kynnast Rope Yoga!
Markmið námskeiðsins er að nemendur njóti betri tengsla við eigin líkama og huga. Lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt atgervi og að nemandinn öðlist aukinn styrk, samhæfingu og liðleika.
* Grunnnámskeið
* 70 mínútna tímar - 60 mínútur á hádegi
* 2 eða 3 tímar á viku
* 6 vikna námskeið
* 14 manns í hóp
Farið er í gegnum heilsuræktarkerfi Rope Yoga í bekkjunum og kenndir grunnþættir öndunar og slökunar, ásamt stöðu, teygju- og flæðiæfingum.
Farið er í undirstöðuatriði sjö þrepa hugræktarkenninga Rope Yoga með sérstaka áherslu á að efla jákvæða sjálfsmynd. Allir velkomnir!