Námskeið sem umbreytir lífi þínu og líkama!
* Fyrir alla
* 75 mínútna tímar
* 2 eða 3 tímar á viku
* 4 - 12 vikna námskeið
* Hámark 14 í hópi
* Verð: 24.900 kr.
Þar sem TRX æfingakerfið er notað í stað lóða eða tækja og unnið með þína líkamsþyngd til að hámarka árangur og virkja og styrkja vöðva.
Við notum nálgun sem kallar á jafnvægi og vitund. Við notum þá mótstöðu sem hentar til að styrkja vöðva , auka snerpu, brennslu, sveigjanleika og úthald.
Hvort sem þú ert byrjandi eða íþróttamaður í toppformi þá eru GlóMotion Heilrækt fyrir þig. Allir ráða við sömu æfingar þar sem hæglega má stjórna álagi æfinga eftir hverjum og einum.
GlóMotion Heilrækt eru kraftmiklir tímar og munum við leggja áherslu á meira krefjandi bak og hliðaræfingar í böndunum, stöðuæfingar, TRX mótstöðuæfingar, teygjur og slökun. Kennd eru lífsviðhorf Rope Yoga sem grundvöllur að lífi í kærleika og umhyggju.