Máttur hjartans þriggja tíma Örnámskeið í sal laugardaginn 4. apríl kr. 14.900
Vilt þú lifa í heilindum eða óheilindum; fresta eða valda þinni hamingju? Vilt þú velsæld eða huglæga fátækt? Hvað gerir að verkum að við leyfum okkur ekki að ná meiri árangri og njóta meiri velsældar? Að við leyfum okkur ekki eða heimilum okkur ekki fulla birtingu? Hverju þurfum við að breyta og hvernig veitum við okkur aukna heimild? Hvað þurfum við að vera eða gera til þess að lifa í fullri birtingu, leyfa okkur óhindraða framgöngu og njóta varanlegar velsældar og hamingju?
Máttur hjartans örnámskeið opinberar þá vegferð og hvetur þig til að sjá fyrir þér og framkalla nýja sýn, myndir og byggðar á heimild opins hjarta og til varanlegrar velsældar og þakklætis.
Ferðalag frá tvískinnungi hugans til
einlægs og heillandi hjarta.
Lærðu að sjá fyrir þér og öðlast varanlega
heimild fyrir velsæld – hamingju!
Máttugar eru hjartlægar manneskjur sem sjá fyrir sér viljandi!
Á þessu námskeiði lærir þú að leiðrétta áunnin vana, skilgreina hvað þú
vilt, hvernig þú breytir viðhorfi þínu og aflar þér heimildar til að laða að
þér allt sem þú vilt!
Hvað vil ég? Hver er ég? Hvert vil ég fara? Hvenær? Hvernig vil ég gera
það? Á hvaða forsendum?
Við höfum allt sem við þurfum - núna - til að lifa í friði og
fullkominni velsæld. Það eina sem þarf til að breyta öllu er að víkja úr vegi
sjálfs þíns og hefja göngu farsældar byggða á skýrri sýn í máttugri vitund.
Máttur hjartans er kraftmikið ferðalag frá tískinnungi til einlægni og
heilinda og er ætlað þeim sem vilja VILJA sig skilyrðislaust!