GlóMotion Lífsfærni með Guðna
picture 100


Lífsfærniskóli Guðna og Guðlaugar er nám í VALFÆRNI, varanlegri velsæld og auðlegð.
Hefst 5.10.2021 ATH: takmarkaður fjöldi
 
Hvað er lífsfærni?
 
Lífsfærni er með öðrum orðum færni í að velja líf sitt, vera valfær og öðlast þannig varanlega velsæld og auðlegð, hamingju.
 
Í Lífsfærniskólanum eru þér veitt verkfæri sem Guðni Gunnarsson hefur þróað um árabil og er ætlað að leiða þig í gegnum ferli þess að uppgötva, velja, ákveða og lýsa yfir þínum tilgangi ásamt því að skilgreina áform sem þú heitir sjálfum þér að fylgja. Þessi verkfæri gera þér kleift að vakna til vitundar og uppfylla drauma þína með því að setja þér markmið sem byggjast á tilgangi og sýn. Þessi markmið geta af sér sérstakan, mælanlegan og framkvæmanlegan árangur eftir ákveðinn tíma. Með því að nema lífsfærni, ástundarðu heilrækt sem tengir hjarta þitt við hugann til að skrá hugsanir, orð og gjörðir sem geta af sér ástríðu, eldmóð og þau tilfinningalegu áhrif sem þarf til að fylla líf þitt allsnægtum og velsæld.
 
Heilrækt gerir kleift að spyrja mikilvægra spurninga um þig, tilvist þína, aðstæður, viðhorf og þrár og vilja. Þessi sjálfsvinna breytir viðhorfum þínum þannig að meira rými verður fyrir einbeittara val sem byggir á því að vera í núinu, í hugsun og ígrundun. Með því að skrá lista yfir möguleika sem leiða af sér velgengni og gnægð lærirðu að finna fyrir því valdi sem felst í ákvarðanatöku. Þú færð leiðbeiningar sem beina þér framhjá óákveðni með því að læra að einbeita þér að ákvarðanatökunni og þannig færðu betur skilið hvað þarf til að ná þeirri niðurstöðu sem þú hefur valið, í vitund, að þú og samferðarmenn þínir hafið hag af. Þú lærir að einbeita þér að ferðinni en ekki áfangastaðnum, en muna samt hvert ferðinni er heitið og vilja hana – þegar þú ert þú ábyrgur, valfær skapari velgengni og allsnægta, þegar þú ert lífsfær.
 
Viltu öðlast frelsi frá oki hugans?
Viltu endalausa orku og áræðni?
Viltu læra að næra, virkja og styrkja líkama þinn?
Viltu hanna eigin umgjörð fyrir varanlega auðlegð, velsæld og hamingju?
Viltu vera valfær, viljandi skapari þinna örlaga?
Viltu opinbera tilgang þinn og efla innblástru - ástríðu?
Viltu auka heimild þína til að þiggja, vera og njóta til fulls?
Viltu vera þakklát VERA?
 
Varanleg auðlegð og velsæld á einstöku verði.
 
Það sem þú færð.
 
Fyrir áramót:
 
Mæting alla þriðjudaga kl. 19:30 til 20:30


Sextíu mínútna persónulegur fundur með Guðna og Guðlaugu á zoom 1 x í mánuði á meðan á náminu stendur.

Bækurnar Máttur viljans, Máttur athyglinnar, Máttur þakklætis og Máttur hjartans


Máttur athyglinnar netnámskeið hefst 5. október


Vakandi netnámskeið hefst 23. nóvember
 
Það sem þú færð.
 
Eftir áramót:
 
Mæting alla þriðjudaga kl. 19:30 til 20:30
Máttur þakklætis netnámskeið 11. janúar
Máttur hjartans netnámskeið hefst 29. mars
Máttur viljans netnámskeið 3. maí
Máttur næringar netnámskeið 24. maí

Lífsfærni mætingar einu sinni í mánuði í hópefli og lífsfærni á zoom með Guðna og Guðlaugu

1 einkatími með Guðna á skrifstofu eða á netinu samkvæmt samkomulagi

Aðgangur að GlóMotion HeilRækt netnámi fylgir meðan á náminu stendur.
 
Vermæti tímabilsins er kr. 300.000
 
50% afsláttur á Rope Yoga grunnnámskeið, Glómotion heilrækt og Rope Yoga flæði

 

Hvað er lífsfærni?
 
Heilrækt er verkfæri sem Guðni Gunnarsson hefur þróað um árabil og því er ætlað að leiða þig í gegnum ferli þess að uppgötva, velja, ákveða og lýsa yfir þínum tilgangi og skilgreina áform sem þú heitir sjálfum þér að fylgja. Þetta verkfæri gerir þér kleift að vakna til vitundar, verða valfær og uppfylla drauma þína með því að setja þér markmið sem byggjast á tilgangi og sýn. Þessi markmið geta af sér sérstakan, mælanlegan og framkvæmanlegan árangur eftir ákveðinn tíma. Með því að ástunda heilrækt tengirðu hjarta þitt við hugann til að skrá hugsanir, orð og gjörðir sem geta af sér ástríðu, eldmóð og þau tilfinningalegu áhrif sem þarf til að fylla líf þitt allsnægtum og velsæld.
 
Heilrækt gerir þér kleift að spyrja mikilvægra spurninga um þig, tilvist þína, aðstæður, viðhorf og þrár og vilja. Þessi sjálfsvinna breytir viðhorfum þínum þannig að meira rými verður fyrir einbeittara val sem byggir á því að vera í núinu, í hugsun og ígrundun. Með því að skrá lista yfir möguleika sem leiða af sér velgengni og gnægð lærirðu að finna fyrir því valdi sem felst í ákvarðanatöku. Þú færð leiðbeiningar sem beina þér framhjá óákveðni með því að læra að einbeita þér að ákvarðanatökunni og þannig færðu betur skilið hvað þarf til að ná þeirri niðurstöðu sem þú hefur valið, í vitund, að þú og samferðarmenn þínir hafið hag af. Þú lærir að einbeita þér að ferðinni en ekki áfangastaðnum, en muna samt hvert ferðinni er heitið – þegar þú ert þú ábyrgur, valfær skapari velgengni og allsnægta.
 

 
Staðgreitt
179.800 kr.
Skrá mig
Raðgreitt 7 mán. 27.140
189.980 kr.
Skrá mig
Prenta
 
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Laugardagur
Sunnudagur
17:00
18:00
19:00
20:00
21:00
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
19:30 - 20:30
Netnám Lífsfærni
Guðni Gunnarsson Lífsfærni M/Guðna 05/09/2020
19:30 - 20:30
Netnám Lífsfærni
Guðni Gunnarsson Lífsfærni M/Guðna og Guðlaugu 05/10/2021